|
Wednesday, 09 June 2010 |
|
Aðalfundur félagsins var haldinn þan 8 júní. Á fundinum var farið yfir skýrslu stjórnar og ársreikning félagsins. Breyting var á stjórn félagsins. Jenný lét af störfum sem gjaldkeri og Guðni Rúnar lét af störfum sem varaformaður. Í stað þeirra kom Inga María inn sem nýr gjaldkeri og Sigþór sem varamaður. Þorsteinn sem áður sat í stjórn tekur við sem varaformaður. Þeir sem hafa áhuga á að sjá skýrslu stjórnar eða ársreikning geta haft samband við stjórnina eða komið við í Ægisbúð. Ég vil þakka þeim Guðna Rúnari og Jenný fyrir það frábæra starf sem þau hafa unnið fyrir sveitina. Eins vil ég bjóða nýjum stjórnarmönnum, þeim Sigþóri og Ingu Maríu velkomin til starfa. kv. Viðar Formaður Ægis |
|
|
Tuesday, 20 April 2010 |
|
Síðastliðinn laugardag tilkynnti stjórn Sæness um úthlutun styrkja til félagasamtaka og fékk björgunarsveitin styrk að upphæð kr. 300.000. Styrkurinn kemur að góðum notum þar sem sveitin er að fjárfesta í ýmsum öryggisbúnaði sem hægt verður að taka með í útköll. Við þökkum stjórn Sæness fyrir styrkinn. |
|
|
Sunday, 14 March 2010 |
|
Laugardaginn 14. mars var farið i jeppaferð í Flateyjardalinn og voru sleðarnir teknir með. Með í för var sveitin Týr. Lagt var á stað úr húsi um 9 leytið um morguninn og hittum við Týrs menn við Þverá og haldið var inn dalinn. Þegar við áttum um 2 km eftir í Heiðarhús þá lenti bíll Týrsmanna með vintri hliðina ofan í gjótu. Eftir miklar tilraunir að spila bílinn upp en án árangurs var ákveðið að kalla eftir meiri hjálp. Um 6 leytið var farið í björgunarleiðangur, með í för var Patrol bíll súlumanna og Bjössi í Réttarholti. Sú björgun gekk vel og var búið að ná upp bílnum um 9 leytið. Hægt er að sjá myndir hér Einnig er hægt að sjá Youtube myndband þega bílinn var spilaður upp hér |
|
|
Tuesday, 02 March 2010 |
|
Fréttir á heimasíðunni hafa verið daprar með eindæmum en ætlum við að ráða bót á því. Það helsta sem búið er að vera á döfinni er að sjálfsögðu flugeldasalan sem kom mjög vel út. Þetta er í fyrsta skipti sem að allir söluaðilar á Eyjafjarðarsvæðinu notast við sömu verðskrá og var það að gefa góða raun. Blómasalan fór fram í tilefni konudagsins og fengum við einstaklegar góðar móttökur hvar sem við komum. Eins og í fyrra seldum við 90 blómvendi sem að Blómabúðin Akur sá um útbúa. Í Byrjun mars fengum við Ingólf og Sigurð frá Landsbjörgu í heimsókn til okkar. Að sjálfögðu tók stjórnin á móti þeim með kaffi og kökum og sátu þeir og spjölluðu við okkur fram eftir kvöldi. Meðan þess sem rætt var um voru bátamál þar sem sveitin hefur hug á að endurnýja. Það sem framundan er hjá okkur er aðalfundur sem verður auglýstur innan skamms. Eftir páska er stefnt að framhaldi á námskeiði fyrir grunnskólann. Stefnt er á að fara með hjóp að krökkumm upp í fjall og gera eitthvað skemmtilegt. Að lokum vill ég minna á að fyrsta þriðjudag hvers mánaðar kl. 20 er opið hús það sem við hvetjum alla til að koma og fá sér kaffi og spjalla. kv. Viðar, formaður Ægis |
|
|
Heimsókn í Grenivíkurskóla |
|
Friday, 01 May 2009 |
|
Þann 29 apríl fór sveitin í heimsókn í grunnskóla Grenivíkur og var með fræðslu fyrir 1-5 bekk vantaði ekki áhuga hjá krökkunum. Byrjað var á því að fræða þau um störf og skyldur björgunarsveita og þeirra tæki og tól. Einnig var rætt um neyðarnúmerið 112 og notkun hjálma. Að því loknu var farið út með krökkunum. Þar var búið að sviðsetja snjóflóð og fengu þau að prófa að leita með snjóflóðaýla. Sleðarnir, báturinn og bíllinn var svo til sýnis og fengu krakkarnir að grípa í nokkur tæki. Að lokum fengum við kennara til að leggjast á börur til að sýna krökkunum hvernig við flytjum slasaða. Myndir af þessu öllu saman má sjá undir myndasíðunni Við þökkum Grenivíkurskóla fyrir að vilja fá okkur í heimsókn |
|
|
Sleðaferð með félögum okkar úr Þingey |
|
Friday, 01 May 2009 |
|
Þann 4. apríl var farið í sleðaferð með björgunarsveitinni í Þingey. Farið var upp á Kaldbak, Fjörður og Flateyjardal og var þetta mjög skemmtilegur dagur. Þökkum björgunarsveitinni Þingey fyrir góðan dag og vonumst til að geta endurtekið leikinn fljótt aftur. Hægt er að sjá myndir úr ferðinni hér |
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 1 - 7 af 15 |